Sálin hans Jóns míns Sódóma Lyrics

[lag: Guðmundur Jónsson / texti: Stefán Hilmarsson]

Skuggar í skjóli nætur
skjóta rótum sínum hér.
Farði og fjaðrahamur.
- Allt svo framandi er.

Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá.
Svo á morgun er allt liðið hjá

Sviti og sætur ilmur
saman renna hér í eitt.
Skyrta úr leðurlíki
getur lífinu breytt.

Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá.
Tíminn fellur í gleymskunnar dá.
Fyrirheit enginn á
- aðeins drauma og þrá.
Svo á morgun er allt liðið hjá.

Hérna er allt sem hugurinn gæti girnst
- já, og eðalguðaveigar.
Nóttin er ung og hún iðar í takt við þig.
Allt getur gerst - og eflaust gerist það víst
bara bruggið ef þú teigar.
Svo er svifið þöndum vængjum
- svo er svifið þöndum vængjum.
Sódóma.

Holdið er hlaðið orku
hafið yfir þína sýn.
Drjúpa af dimmum veggjum
dreyri, vessar og vín.

Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá.
Lífið fellur í gleymskunnar dá.
Fyrirheit enginn á
- aðeins drauma og þrá.
Svo á morgun er allt liðið hjá.

See also:

59
59.101
เพื่อนไม่ทิ้งกัน Ost.พันธุ์ X Lyrics
Dr. Deseo, Fito y Extremo De nuevo en tus brazos Lyrics