Bubbi Afgan Lyrics

Ég hlusta á Zeppelin og ég ferðast aftur í tímann.
Þú spyrð mig hvar er gimsteinninn í augum þínum ljúfan?
Svitinn perlar á brjóstum þínum þú bítur í hnúann,
þú flýgur á brott með syndum mínum, Svartur afgan.

Ég elska þig svo heitt að mig sundlar og verkjar.
Í faðmi þínum þú lætur mig finna til sektar.
Útí horni liggur kisi þinn og malar,
inni á baðherbergi stendur vofan þín og talar.

Úti hamast regnið við að komast inn til þín.
Ég skríð undir sængina heyri hvernig stormurinn hvín.
Drottningin með stríðsfákana sína bíður okkur inn til sín.
Hún sýnir okkur inní sólina, segir að sólin sé sín.

Lyftan var biluð, húsvörðurinn kallaði mig svín.
Sagðist hata alla poppara, ég hélt hann væri að gera grín.
Ég sagðist að ég væri að heimsækja stúlku hún væri unnusta mín.
Hann sagði mér er nákvæmlega sama þó hún sé ekki stúlkan þín.

Þegar ég bankaði á dyrnar opnaði vofan þín.
Hún sagði þú varst bara draumur, ég hef aðeins séð þig í sýn.
Ó, ég elska þig, ég vil ekki vakna,
Svartur afgan, drauma minna ég sakna.

Bubbi Morthens: söngur, gítar, munnharpa
Björgvin Gíslason: Rafgítar
Tómas M. Tómasson: bassi, hljómborð
Ásgeir Óskarsson: Trommur

See also:

62
62.77
Aline Barros Salmo 23 Lyrics
Group 1 Crew A Lot In Common Lyrics