Sigur Rós & Steindor Andersen Fjöll í Austri Fagurblá Lyrics

Úr mansöng 1. rímu.(ferskeytt)

Fjöll í austri f__urblá
freista dalabarnsins.
Ungur fylgir æskuþrá
upp til jökulhjarnsins.

Sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi,
víða stíða þræddi þá
þunga hraunavegi.

Heiðin breiða hugumkær
hvetur viljann ofar.
Leiðin seiðir, fráum fær,
fögrum sýnum lofar.

Gangan sækist öruggt enn
urðarróti móti.
Einatt hlutu heiðamenn
höggvinn fót á grjóti.

Hver, sem ofar á að ná,
einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
fjúk og hretið betur.

Anda heitum yndi nóg
unaðsreitir geyma.
Seinna leitar þráin þó
þinna sveita heima.

See also:

77
77.62
Westlife wetslife - en ti deje mi amor Lyrics
Kasabian Kasabian - Processed Beats (acoustic) (Live Tent Oxegen 2005) Lyrics