Ellen Kristjánsdóttir Jesús grætur, heimur hlær Lyrics

Sálmur 188
Jesús grætur, heimur hlær,
hismið auma síkátt lifir,
syndaþrællinn séð ei fær
sverð, er höfði vofir yfir,
sál hans viðjum vefjast lætur,
veröld hlær, en Jesús grætur.

Jesús grætur, hjartað hans
hrellir mannkyns bölið sára,
sálarglötun syndugs manns
séð fær gæskan ei án tára.
Vitnið, dagar, vottið, nætur,
veröld sekri: Jesús grætur.

Jesús grætur, grátið þér,
Guð er þrátt með brotum styggið.
Glötun búin yður er,
ef í synd þér fallnir liggið.
Heimur, á þér hafðu gætur.
Heimur, sjáðu: Jesús grætur.

Ingemann - Sb. 1871 - Helgi Hálfdánarson

See also:

82
82.117
Bob Marley REDEMPTION Lyrics
Элизиум Острова Lyrics