Sprengjuhöllin Tímarnir okkar Lyrics

Afsakið, ert þú að passa þessa stóla?
Ertu ekki vinkona hans Óla?
Hann var að klára Kennó síðasta vor.
Óli eða Svenni, ég man ekki hvor
var í þessu partíi áðan.
Ég veit um stelpu sem að dáði hann.
Ég þarf að segja við þig nokkur orð,
komdu og sestu með mér hérna við þetta borð.
Ertu ekki með eitthvað gott í gangi?
Mér finnst svona eins og pínu mig langi til
að þekkja þig aðeins betur:
Hvað varstu að læra í vetur?
En ég get allavega sagt þér að ég var að vinna á vellinum,
hitti einu sinni Kana undir fellinu.
Var svo alveg að spá í að fara í Háskólann,
ekki langt síðan ég kláraði kvöldskólann.
En þú, ert þú á góðri leið með að klára þessa sálfræði?
Sorrí, en ég er kominn með smá málæði.
Djöfull er ég sammála þér með þennan Bigga í Maus,
hvar varstu svo þegar Hekla gaus?
Ég var með stelpu sem hét Linda,
þetta er langt síðan, hún fór líka í Tinda.
Gat aldrei neitt í stærðfræði 103
en mikið var andardráttur hennar hlýr.
Allir eru djúpir á einhverjum sviðum:
það fer bara eftir hverju við miðum.
En passar það ég hafi heyrt þú hafir verið að leigja
á Lindargötunni mér heyrðist þú segja.
Ég var einu sinni næstum kominn þangað inn.
Ég var ekki sá heldur úti ég var hinn.
Var þetta ekki kvöldið sem við allir saman skullum?
Ég og Pétur Ottós og Árni Vil var fullur
og Ole Viggo Mortensen var trylltur inn á KB,
leyfðu mér svo að vera lengur hjá þér því
þú minnir mig svolítið á Emilíönu Torrini -
ég þekki gæja sem náði að skvetta aðeins í'enni.
Og þú veist vel að ég þekki þig frá þúsund milljón leiðum
við erum komin af fólki sem bjó upp á heiðum
svona eins og fimmtíuogþrjár kynslóðir - Sigurður bani Fáfnis -
tuttuguogeitthvað mismunandi tegundir efnis.
Þú veist að það er löngu löngu löngu búið að greina allt.
Er það eitthvað skrítið þó að mér finnist kalt?
Sjáðu svo til þess að ég fái að koma aðeins nær þér,
við erum hvort sem er einn og sami hluturinn.
Þetta er ekki illa meint og þú ert meira en fyrir framan mig,
og það verður svo gott að hafa þig.

See also:

105
105.2
Sophie Ellis-Bextor Groovejet (If This Ain't Love) (with Spiller) Lyrics
Crematory 05 Act Seven Lyrics