Hjálmar Ég vil fá mér kærustu Lyrics

Ég vil fá mér Kærustu

Ég vil fá mér kærust u sem allra allra fyrst.
En ekki verður gott að finna han a,

því hún skal hafa kinnar eins og hrútaber á kvist

og hvarmaljósin björt sem demantana

Hún skal vera fegurst af öllum innan lands

og iðin við að spinna og létt að stíga dans

og hún skal kunna' að haga sér hið besta.

Þær eru flestar góðar meðan unnustinn er nær

en oss þær eru vissar til að blekkja

en ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær

sem elskar mig og bara mig vill þekkja

og hún skal líka finna beztu hugarró hjá mér

ef húsi mínu færir hún iðni og dyggð með sér

og stóra, fulla kistu beztu klæða.

Og ef ég svo í eina næ jafnt alveg sem ég vil

þá óðara til brullups skal ég feta

og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til

og vín og hrokafylli sína að éta

og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð

hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð

en til þess verður ofurlitlu að eyða.

See also:

105
105.29
NightWish She is my skin Lyrics
Ricardo Arjona 05. Vivir sin ti es posible Lyrics