Vilhjálmur Vilhjálmsson Söknuður Lyrics

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga, því er ver
Ef værir þú hjá mér, vildi' ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum.
Er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd
hæglát farið niðr'á strönd.
Fundið stað, sameinað, beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin
Í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttur ís og myrku jólin
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.

Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig;
ég rýni út um rifurnar
ég reyndar sé þig allstaðar.
Þá napurt er, það næðir hér, og nístir mig.

See also:

113
113.22
Franco y Priscila Let It Be Lyrics
Lovers Dolphin Eyes Lyrics